Fruss
já það er ekki laust við það að maður þurfi að hafa fataskipti eftir hverja einustu máltíð á þessum bæ. Hér er frussað óspart og er Hlini Snær duglegastur í þeim efnum og hlær svo svakalega þegar matarsletturnar frussast um allt að maður á bara erfitt að halda andliti fyrir framan hann, enda þá allur orðinn út í matarslettum! Og yfirleitt er svona “beljueffekt” á þessu, þegar einn byrjar þá byrja allir, frekar skemmtilegt allt saman. En hvað um það, mamman gefst sko ekki upp segjir að þetta meigi ekki og heldur ótrauð áfram að moka upp í þau.
Annars bakaði ég góðan skammt af norskum skólabollum í fyrradag sem að Karítas Ísold er gjörsamlega sjúk í. Hún elti mann um allt “nammi namm” og heimtar meira. Pabbinn á heimilinu er ekki minna glaður í bollurnar. Talandi um bakstur þá fer bráðlega bara að líða að Sörubakstri, hugsa að ég þurfi að baka vel af þeim núna enda verður fullt hús hér um jólin!
Amma Brynja og afi Jómbi verða hér ásamt Kolla og Önnu, það hrikalega gaman, ekki laust við að það sé að byrja bara tilhlökkun til jólanna :)
Krakkarnir eru orðin svakalega dugleg í sundinu og erum við búin að skrá þau á framhaldsnámskeið eftir jól. Þar sem að Jörgen frændi er svo góður við okkur að nenna að koma með okkur áfram :)
Jæja þetta er nóg í bili………Heisan


